Þörf fyrir að fá viðurkenningu fyrir framlag sitt á vinnustað.
Stjórnendur ættu að hafa í huga að jákvæð viðurkenning er mun áhrifaríkari en skammir og refsingar. Til að starfsfólk skynji að stjórnandi meti raunverulega vinnuframlag sitt getur stjórnandinn útskýrt nákvæmlega hvað er tekið eftir og þannig veitt rökstuðning fyrir hrósinu.
Eitt mikilvægasta markmiðið er að framkalla sjálfsvitund hjá starfsfólki þ.e. að meta eigin árangur og verkefni að verðleikum. Slík viðurkenning næst þegar verkefnin eru nægilega krefjandi en glatast þegar starfsfólki finnst verkefnin léttvæg eða letjandi. Jafnframt þarf að hafa í huga að viðurkenningar í formi launa, hlunninda eða tækifæra til starfsþróunar þurfa að vera réttlátar og samræmast vinnuframlagi, mati og væntingum starfsfólks eftir því sem unnt er.
Æskilegt er að draga úr samkeppnistengdum viðurkenningum, þar sem slíkar hampa einum einstaklingi á kostnað annara. Árangursríkara er að beina athyglinni að sameiginlegum árangri teymis eða vinnustaðar og tryggja réttlæti í úthlutun viðurkenninga. Jafnframt er gott að hafa samráð við starfsfólk um viðurkenningar til að þær endurspegli þarfir og óskir þeirra.
Gullna reglan er að veita framlagi hvers annars eftirtekt og hrósa fyrir vel unnin störf, styðja við bakið á hvort öðru og deila gleðinni af vel unnu verki.
Til að starfsfólki upplifi að það fá viðurkenningu fyrir framlag sitt í starfi þarf að huga að því að :
- Hrósa með rökum fyrir vel unnin störf.
- Eiga samráð við starfsfólk um viðburði og viðurkenningar.
- Veita teymi viðurkenningar frekar en einstaklingum.
- Gæta þess að starfsfólk hafi verkefni við hæfi sem stuðla að sjálfsvitund.