Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er félagsleg heilsa órjúfanlegur hluti af heilsu manneskjunnar. Þörfin fyrir að tilheyra er ein af grunnþörfum okkar – jafn mikilvæg og svefn, næring og hreyfing – þó umfang og eðli félagslegra tengsla sé, líkt og með aðrar grunnþarfir, einstaklingsbundin.
Félagsleg einangrun hefur aukist á heimsvísu. Einn af hverjum þrem fullorðinna er félagslega einangraður. WHO skilgreinir hana nú sem alvarlegan lýðheilsuvanda, til jafns við reykingar, ofneysla áfengis, offita og aðrar ógnir við almenna heilsu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að félagsleg einangrun eykur líkur á sjúkdómum á borð við hjarta og æðasjúkdóma, heilabilun og geðrænan vanda og eykur líkur á ótímabærum dauða.
Við sem manneskjur þurfum að vera meðvituð um að breytingar og lífskreppur – til dæmis tengt vinnu, búsetu, námi, barneignum, skilnaði, missi eða heilsufari – geta haft djúpstæð áhrif á félagsleg tengsl. Þess vegna er mikilvægt að þekkja einkenni einangrunar, vita hvert við getum leitað og vera vakandi fyrir líðan okkar sjálfra og hvers annars.
Þetta getur hent okkur öll á lífsleiðinni.
Lestu meira um félagslega einangrun hér.